Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausar til umsóknar stöður rannsóknarlögreglumanna við embættið, með starfsstöð á Akureyri. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar til sex mánaða frá og með 1. júní 2026, með fimm ára skipun í huga að liðnum reynslutíma. Framtíðarsýn embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er framsækið embætti fyrir vaxandi samfélag. Leiða af hlutverki lögreglu, eins og það er skilgreint í 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 9. gr. reglugerðar nr. 1051 / 2006 um starfsstig innan lögreglunnar. Á verksviði og ábyrgð rannsóknarlögreglumanns eru rannsóknir viðameiri og flóknari mála, þar á meðal rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi og tæknirannsóknir, sem vegna eðlis krefjast aukinnar sérhæfingar og sérþekkingar, verkstjórn hóps lögreglumanna við rannsókn mála þegar það á við og náið samstarf við ákærendur og eftir atvikum aðstoð við undirbúning saksóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti tvö ár frá því að hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplóma í lögreglufræðum, en auk þess: Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp. Sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum Lausnamiðað og jákvætt viðhorf Frumkvæði og drifkraftur Góð íslensku- og enskukunnátta Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja reynslu af rannsóknum og þekkingu á helstu rannsóknaraðferðum. Góð þekking á landskerfum lögreglu og staðgóð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg, en einnig er tungumálakunnátta kostur. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert. Starfshlutfall er 100% og er dagvinna með bakvaktaskyldu, þannig að aðsetur á Akureyri, eða næsta nágrenni, á meðan á bakvakt stendur er skilyrði. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um setningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996. Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 22.05.2026 Bergur Jónsson yfirlögregluþjónn Tölvupóstur: bergur.jonsson@logreglan.is Sími: 444-2800 Skarphéðinn Aðalsteinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn Tölvupóstur: sa01@logreglan.is Sími: 444-2800 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Rannsóknarlögreglumenn - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra Staðsetning Norðurland eystra Starfshlutfall 100% Starf skráð 04.05.2026 Umsóknarfrestur 22.05.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar