Við leitum að þjónustulunduðu og jákvæðu starfsfólki í fullt starf og hlutastarf í þjónustudeild IKEA. Fullt starf vinnutími: - Unnið á 2-2-3 vöktum frá kl. 11-20 (önnur hver helgi) Hlutastarf vinnutími: - Önnur hver helgi kl. 11-20 og möguleiki á að vinna staka virka daga milli kl. 16-20. Í starfinu felst afgreiðsla á kassa og upplýsingagjöf til viðskiptavina á kassasvæði, þjónustuborði, skilað og skipt sem og við inngang verslunar. Í þjónustudeildinni starfar samheldinn hópur starfsmanna sem hafa það sameiginlegt að vilja hafa gaman í vinnunni, veita framúrskarandi þjónustu og hafa metnað til að þróa sig áfram í starfi.Menntunar- og hæfniskröfurGóð íslenskukunnáttaVandvirkniÁbyrgðarkenndJákvæðniStundvísiÞjónustulundDugnaðurFrumkvæði og sjálfstæðiFríðindiSkapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfiSkemmtilegir samstarfsfélagarNiðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti og salatiFríir ávextir og hafragrauturÁrlegur heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðunAfsláttur af IKEA vörumSamgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnuÝmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðumAðgengi að sumarbústaði til einkanotaGóð starfsmannaaðstaðaUmsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðssvið IKEA, radningar@IKEA.is Hlökkum til að heyra frá þér
Höfuðborgarsvæðið | Garðabær