Við leitum að ábyrgðarfullri, hraustri og duglegri manneskju til að sjá um að fylla á og framstilla drykkjarvörur Ölgerðarinnar í helgarstarfi á Akranesi. Viðkomandi er fulltrúi þeirra vörumerkja sem hún annast og ber ábyrgð á að vörurnar séu framsettar á sem söluvænlegastan hátt í verslunum á svæðinu.Helstu verkefni og ábyrgðAð þjónusta viðskiptavini og mæta þörfum þeirraAð framstilla drykkjarvöru á faglegan háttAð fylla á hillur, kæla og framstillingar í verslunumAð hámarka sölutækifæri og lágmarka rýrnun í samvinnu við sölumennAð tryggja fagleg samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólkMenntunar- og hæfniskröfurBílprófSjálfstæð vinnubrögðJákvæðni, áreiðanleiki og framsækniHreint sakarvottorðVið hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um