Komdu að kaupa inn!Við hjá Landsvirkjun leitum að metnaðarfullum sérfræðingi til liðs við innkaupadeildina okkar. Innkaupadeildin vinnur með starfsfólki um allt fyrirtækið að kaupum á vörum og þjónustu. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, vandaða ráðgjöf, gagnsæi og hagkvæmar lausnir. Í boði eru fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu teymi sérfræðinga.Sem sérfræðingur í innkaupum hefur þú umsjón með og tekur þátt í innkaupa- og útboðsverkefnum, veitir ráðgjöf um innkaup og samninga, og tekur virkan þátt í þróun verklags.Við hverju má búast?Gerð útboðs- og samningsgagnaSamskiptum við birgja og eftirfylgni samningaGreiningu gagna og hagnýtingu upplýsinga til stuðnings ákvörðunartökuNýtingu þekkingar og hugmynda til að skapa virðiÞátttöku í þróun og innleiðingu nýrra vinnubragða, stafrænna lausna og sjálfvirknivæðingu ferlaHefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu?Háskólamenntun sem nýtist í starfiFramúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuð hugsunReynsla af innkaupum, samningagerð, gagnagreiningu eða sjálfvirknivæðingu er styrkur en reynsla af opinberum innkaupum er kosturGreiningar- og skipulagshæfni ásamt stafrænni færniÁhugi á nýtingu gervigreindar og nýrra tæknilausna til að einfalda verklag og skapa virðiGott vald á íslensku og ensku í ræðu og ritiHvernig vinnustaður er Landsvirkjun?Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Í teyminu okkar færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.Hljómar þetta spennandi? Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað vekur áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á mannaudur@landsvirkjun.is