Laus eru til umsóknar þrjú full störf doktorsnema við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands. Störfin eru á sviði gagnavísinda og gervigreindar (AI), með áherslu á notkun tölva sem hafa afar mikið reikniafl (HPC). Störfin eru styrkt til þriggja ára og fela í sér náið samstarf á milli Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands, Jülich ofurtölvusetrið (Forschungszentrum Jülich) í Þýskalandi og annarra alþjóðlegra stofnana og fyrirtækja á þessu sviði. Doktorsneminn verður undir handleiðslu að minnsta kosti þriggja akademískra starfsmanna HÍ sem hafa mikla reynslu af rannsóknum og samfélagsáhrifum HPC og gervigreindar, þar á meðal sérfræðinga í notendasviðum (t.d. fjarkönnun, jarðeðlisfræði, eldfjallafræði, stór tungumálalíkön og tölvuvinnslu tungumála).Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar í gervigreind, byggðar á djúpnámi (deep learning), þar sem farið hefur verið frá þröngum, sértækum líkönum yfir í svokölluð grunnlíkön (foundation models) sem eru almennari og ætluð til að læra vítt og yfirfæra þekkingu á milli sviða. Þessi líkön eru forþjálfuð á ofurtölvum með miklu magni af misleitum, oft ómerktum gögnum og notast við sjálfbeint nám (self-supervised learning). Doktorsneminn mun rannsaka skölunarlögmál (scaling laws), þ.e. hvernig aukning á stærð líkans, magni gagna og reiknigetu hefur áhrif á náms- og ályktunarhæfni. Rannsóknin nýtir nýjustu EuroHPC ofurtölvurnar til að þróa og meta fjölþátta grunnlíkön (multimodal foundation models) til að leysa flókin raunveruleg vandamál.Doktorsneminn verður virkur þátttakandi í einni af Hermi- og gagnstofunum sem eru starfandi í íslenska HPC-samfélaginu. Doktorsneminn mun vinna náið með öðrum doktorsnemum við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ, alþjóðlegum rannsóknarhóp verkefnisins og öðrum evrópskum samstarfsaðilum (verkefni á vegum Evrópusambandsins, sprotafyrirtækjum, nýsköpunarfyrirtækjum, atvinnulífi og opinberum stofnunum) til að koma frumgerðum úr gervigreindarrannsóknum á þjónustu á framleiðslustigi sem keyrir á nútíma HPC- og skýjainnviðum.Doktorsnemanum verður veittur aðgangur að fremstu EuroHPC kerfunum (t.d. JUPITER, LUMI, LEONARDO). Það gerir honum kleift að verða virkur þátttakandi í víðara vistkerfi EU AI Factory verkefna, þar á meðal European Digital Innovation Hub of Iceland (EDIH-IS), EuroCC3 Icelandic National Competence Centre for HPC (NCC Iceland for HPC) og AI Factory Antenna of Iceland (AIFA-ICE, betur þekkt sem Glóð á Íslandi).