Við leitum að metnaðarfullum og drífandi leiðtoga í starf teymisstjóra lífeyrisþjónustu hjá Arion banka. Deildin er hluti af viðskiptaumsjón sem tilheyrir sviði reksturs og menningar. Teymið ber ábyrgð á allri almennri þjónustu er varðar lífeyrismál viðskiptavina — bæði atvinnurekenda og sjóðfélaga — þ.m.t. skráningu, útgreiðslum, úrskurðum réttinda, innheimtu, uppgjöri og samskiptum við fjölda samstarfsaðila innan og utan bankans.Starfsstöðvar teymisins eru bæði í Reykjavík og á Siglufirði, og felur starfið því í sér stjórnun teymis á tveimur starfsstöðvum. Við bjóðum upp á krefjandi og fjölbreytt starf á traustum vinnustað þar sem tækifæri gefst til að takast á við fjölbreytt verkefni og vaxa í starfi. Um er að ræða spennandi tækifæri til að leiða öflugt og samhent teymi ásamt virkri þátttöku í þjónustuþróun. Starfsumhverfið einkennist af góðum starfsanda, metnaði og öflugri samvinnu þar sem lögð er rík áhersla á stöðugar umbætur, fagmennsku og framþróun. Hlutverk
Dagleg stjórnun teymisins, mótun stefnu og yfirumsjón með verkefnum
Stuðla að góðri liðsheild, leiða þróun og vera öðrum hvatning til góðra verka
Vinna með öðrum sviðum bankans að því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu
Ráðgjöf til aðila innan bankans um málefni sem tengjast verkefnum hópsins
Ábyrgð á að verklag sé kortlagt og endurskoðað ásamt þróun á kerfum og verkferlum
Hæfniskröfur
Framúrskarandi leiðtogahæfni, drifkraftur og samskiptafærni
Reynsla af stjórnun eða geta til að leiða og leiðbeina starfsfólki
Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og gagnrýnin hugsun
Góð þekking á starfsemi og innviðum fjármálafyrirtækja; þekking á lífeyrismálum er kostur
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Mjög gott vald á íslensku og ensku ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti
Nánari upplýsingar um starfið veitir Árni Davíð Skúlason, forstöðumaður viðskiptaumsjónar (arni.skulason@arionbanki.is) og Hanna María Pálmadóttir, mannauðsstjóri (hanna.maria.palmadottir@arionbanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Hlutverk Arion banka er að vinna að markmiðum viðskiptavina, eigenda, starfsfólks og samfélagsins alls. Við bjóðum snjallar og traustar fjármálalausnir sem skapa viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu verðmæti til framtíðar. Starfsfólk bankans er fjölbreyttur hópur fólks sem á það sameiginlegt að hafa metnað fyrir störfum sínum. Við leggjum okkur fram við að byggja upp vinnustað þar sem kunnátta, þekking og færni fær að njóta sín. Við virðum mannréttindi og jafnrétti í allri okkar starfsemi og leggjum kapp á að starfa í sátt við samfélagið og umhverfið. Þinn árangur er það sem við stefnum að. Upplýsingar um persónuvernd fyrir umsækjendur.
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík