Við leitum að öflugum stjórnanda með menntun á sviði iðjuþjálfunar, sálfræði, félagsráðgjafar eða þroskaþjálfafræða til að leiða og efla starfsemi barna- og unglingageðdeildar. Í kjarna starfsins er stuðningur og aðhald við þverfaglega liðsheild þar sem þarfir þjónustuþega, gagnreyndar aðferðir og öryggi eru í forgrunni. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra hjúkrunar, yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og annað samstarfsfólk. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kvenna- og barnaþjónustu. Barna- og unglingageðdeild samanstendur af legudeild, dagdeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda og fjölskyldur þeirra. Á barna- og unglingageðdeild starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu, faglega örvandi og líflegu starfsumhverfi þar sem kapp er lagt á menningu sálræns öryggis. Unnið er í þverfaglegum teymum og mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi. Þjónustan er í stöðugri framþróun. Áhersla er lögð á skilvirkni og nýsköpun og sjónarmið þjónustuþega eru nýtt til umbóta. Deildarstjóri faghópa er leiðtogi hóps fagfólks með fjölbreyttan þekkingargrunn og hefur þríþætta ábyrgð: faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi. Fagleg ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og skipulagi starfseminnar, stuðlar að fjölfaglegri þekkingarþróun og umbótastarfi, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildanna Er virkur þátttakandi í samstarfi stjórnenda kvenna- og barnaþjónustu Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala Er í virku samtali við samstarfsstofnanir og helstu hagaðila Íslenskt starfsleyfi sálfræðings, þroskaþjálfa, félagsráðgjafa eða iðjuþjálfa Haldbær starfsreynsla sem klínískur heilbrigðisstarfsmaður Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur Leiðtogahæfni, geta til að vinna undir álagi Góð íslensku- og enskukunnátta, færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli Góð tölvukunnátta, geta og vilji til að læra nýjungar Hreint sakavottorð Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað. Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, deildarstjóri, stjórnunarstarf, sálfræðingur, þroskaþjálfi, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5 Staðsetning: Dalbraut, 105 Reykjavík Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026 Sigurveig Sigurjónsd Mýrdal Tölvupóstur: sigurves@landspitali.is Inga Lára Ólafsdóttir Tölvupóstur: ingalo@landspitali.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 100% Starf skráð 22.04.2026 Umsóknarfrestur 15.05.2026 Stafrænt Ísland Opinberir aðilar Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar English Facebook Akstur og bifreiðar Atvinnurekstur og sjálfstætt starfandi Dómstólar og réttarfar Fjármál og skattar Fjölskylda og velferð Heilbrigðismál Húsnæðismál Iðnaður Innflytjendamál Launþegi, réttindi og lífeyrir Málefni fatlaðs fólks Menntun Neytendamál Samfélag og réttindi Samgöngur Umhverfismál Vegabréf, ferðalög og búseta erlendis Samráðsgátt Undirskriftalistar Opnir reikningar ríkisins Tekjusagan Ríkisreikningur
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík