Félagsmiðstöðin Þruman auglýsir eftir drífandi, hugmyndaríkum og ábyrgum einstaklingum í störf frístundaleiðbeinanda. Um er að ræða tímavinnu, seinni hluta dags og á einstaka viðburðum Þrumunnar á kvöldin. Ef þú ert hugmyndarík/ur, skapandi og hefur áhuga á starfi með börnum og ungmennum, þá erum við að leita að þér!Frístundaleiðbeinandi tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd frístundastarfs fyrir ungmenni á aldrinum 10-16 ára hjá Grindavíkurbæ í nánu samstarfi við forstöðumann. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.Helstu verkefni og ábyrgðStarfsmaður tekur þátt í að skipuleggja og móta tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í samstarfi við forstöðumannLeitast eftir að mynda jákvætt, skapandi, vinalegt og opið andrúmsloft í frístundastarfiSinnir hefðbundinni opnun félagsmiðstöðvar og verkefnum sem fylgja þeim s.s. undirbúningi og frágangiVinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frítímastarfiVinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminniGóð samvinna og samráð við börn, unglinga og samstarfsfólkMenntunar- og hæfniskröfurReynsla af starfi með börnum og ungmennumFærni í mannlegum samskiptumFrumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfniHeiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera umburðalyndurHæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingumGeta til að tekið virkan þátt í hugmyndavinnu og breytingum með jákvæðni og samvinnuHreint sakavottorðHafa náð 20 ára aldriLaunakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.Öllum umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins.Nánari upplýsingar veitir Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður frístundamála í síma 420-1100 og í netfanginu elinborg@grindavik.is.Umsækjendur um stöðu frístundaleyðbeinanda þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um, sérstaklega þá sem hafa áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík.Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2026Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.