Heilbrigðisritari / skrifstofumaður óskast á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi Leitað er eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er fljótur að tileinka sér ný verkefni, sýnir frumkvæði í starfi og á auðvelt með að starfa í teymi. Um er að ræða fullt dagvinnustarf sem felur í sér fjölbreytt, krefjandi verkefni og krefst góðrar samskiptahæfni. Deildin er 35 rúma legudeild sem tilheyrir dag- og legudeildum skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæslujónustu Landspítala. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða og einstaklingsmiðaða aðlögun að starfi. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem stuðlar að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. móttaka sjúklinga, tímabókanir, símsvörun og upplýsingagjöf Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulipurð og færni til að takast á við krefjandi aðstæður Góð almenn tölvufærni Þekking á helstu tölvukerfum Landspítala er kostur Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi Hæfni til að stýra ólíkum hópum eða teymi er kostur Færni til að takast á við krefjandi aðstæður og stuðla að jákvæðum starfsanda á starfseiningu Góð íslensku- og enskukunnátta Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað. Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, ritari, skrifstofumaður, skrifstofustarf Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5 Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjvík Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 06.11.2026 Dagrún Ása Ólafsdóttir deildarstjóri Tölvupóstur: dagruna@landspitali.is Sími: 621-8676 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 100% Starf skráð 27.10.2026 Umsóknarfrestur 06.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík