Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum tónmenntarkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 70% starf. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 530 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Tónmenntakennsla í grunnskólanum
Tónmenntakennsla í leikskólanum í sama húsnæði
Forskólatími í sama húsnæði
Halda utan um samstarfsverkefni leik-, grunn- og tónlistarskólans
Taka þátt í uppbyggingu á nýju skólasamfélagi í samvinnu við stjórnendur
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
Haldgóð þekking á kennslufræði tónmenntakennslu
Tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Stundvísi og samviskusemi
Mjög góða íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars. 2026
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Höfuðborgarsvæðið | Hafnarfjörður