Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem þú færð tækifæri til að móta og þróa rödd Advania, miðla þekkingu og reynslu sérfræðinga okkar og segja sögur sem skapa áhuga og byggja upp traust. Þú kemur að þróun og framleiðslu á fjölbreyttu efni, allt frá fréttum, greinum og viðtölum yfir í reynslusögur viðskiptavina, efnisskrif fyrir vef og markaðsherferðir. Þú verður hluti af öflugu markaðsteymi Advania og vinnur náið með sérfræðingum, stjórnendum, vörueigendum og öðrum teymum innan fyrirtækisins. Hlutverk þitt er að draga fram virði Advania, miðla þekkingu og tryggja áhugaverð og samræmd skilaboð sem styrkja vörumerkið og styðja við markmið fyrirtækisins. Helstu verkefni og ábyrgð Skrifa og ritstýra fjölbreyttu efni, svo sem fréttum, tilkynningum, greinum, viðtölum og kynningarefni Finna og móta áhugaverðar sögur úr starfsemi Advania, miðla þekkingu starfsfólks og þróa og ritstýra efni fyrir Tæknital Þróa og framleiða reynslusögur sem draga fram þann ávinning sem viðskiptavinir hafa af samstarfi sínu við Advania Skrifa auglýsinga- og herferðatexta, efni fyrir markpósta, samfélagsmiðla og aðra stafræna miðla fyrirtækisins. Skrifa og þróa efni fyrir advania.is með áherslu á notendamiðaða framsetningu og aðlögun efnis að leitarvélum og gervigreind Tryggja samræmdan tón, málfar og skilaboð í öllu efni með tilliti til gæða og vörumerkis Veita sérfræðingum, stjórnendum og öðrum teymum fyrirtækisins ráðgjöf um efnisgerð, miðlun og samskipti Hæfni Framúrskarandi hæfni í textagerð og ritstjórn Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti Gott auga fyrir áhugaverðum sögum og geta til að gera flókið viðfangsefni aðgengilegt og áhugavert Hugmyndaauðgi og færni í að aðlaga efni, skilaboð og framsetningu eftir ólíkum miðlum, markhópum og tilgangi Góð samskiptahæfni, eiga auðvelt með að afla upplýsinga og vinna með fólki úr ólíkum áttum Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og hæfni til að halda utan um mörg verkefni í einu Áhugi á tækni, nýsköpun og viðskiptum og hæfni til að setja sig inn í fjölbreytt málefni Menntun og reynsla Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjölmiðlunar, markaðsfræða eða sambærilegu Reynsla af textagerð, ritstjórn, efnisgerð og/eða markaðssamskiptum Reynsla af því að taka viðtöl og vinna upp úr þeim efni er kostur Þekking á leitarvélabestun og stafrænu markaðsstarfi er kostur Hjá Advania færðu tækifæri til að hafa áhrif á hvernig við segjum sögur, miðlum þekkingu og byggjum upp sterkt vörumerki. Þú munt vinna með öflugu teymi sérfræðinga í markaðsdeild sem hefur mikinn metnað fyrir því sem það gerir og vinnur saman að því að draga fram það virði sem við sköpum fyrir viðskiptavini okkar. Vinnustaðurinn Advania Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti. Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur. Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni. Ferli ráðninga Tekið á móti umsóknum til 2. desember 2026 Yfirferð umsókna Boðað í fyrstu viðtöl Boðað í seinni viðtöl Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á Öflun umsagna / meðmæla Ákvörðun um ráðningu Öllum umsóknum svarað Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Auður Karitas Þórhallsdóttir, markaðsstjóri, audur.karitas.thorhallsdottir@advania.is / 4409000.
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík