Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir sjúkraliðum/sjúkraliðanemum og öðru starfsfólki við aðhlynningu á hjúkrunardeildir. Ráðningartími er skv. samkomulagi en í boði er bæði tímabundin og ótímabundin störf. Starfshlutfall er skv. samkomulagi. Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt. Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira. Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila Þátttaka í teymisvinnu Önnur tilfallandi störf skv. beiðni næsta stjórnanda Íslenskt sjúkraliðaleyfi fyrir sjúkraliða/ staðfesting á námi fyrir sjúkraliðanema Íslenskukunnátta skilyrði Reynsla er kostur en ekki skilyrði Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun Gott orðspor og hreint sakavottorð Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Með umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku, kynningarbréf og afrit af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorgi.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu. Starfshlutfall er 60-100% Umsóknarfrestur er til og með 20.07.2026 Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur svæðis Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is Sími: 432 4220 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar og starfsfólk í aðhlynningu á hjúkrunardeildir - HSN Sauðárkrókur Staðsetning Norðurland vestra Starfshlutfall 60-100% Starf skráð 08.07.2026 Umsóknarfrestur 20.07.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar
Norðurland | Sauðárkrókur