Sumarstarfsmaður hjá Hafnarfjarðarhöfn í ferðaþjónustu
Hafnarfjarðarhöfn, í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, leitar að öflugum sumarstarfsmanni til að sinna verkefnum tengdum þjónustu við skemmtiferðaskip og upplýsingamiðlun ferðamála í Hafnarfirði. Leitað er eftir sumarstarfsmanni sem hefur þekkingu og áhuga á ferðaþjónustu.
Auk þess mun starfsmaðurinn sinn almennri upplýsingagjöf um áfangastaðinn Hafnarfjörð og öðrum tilfallandi verkefnum eins og við á.
Hafnarfjarðarhöfn er ein elsta höfn landsins en starfsemi hennar er í dag ákaflega mikil og fjölbreytt.
Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við þjónustuaðila á hafnarsvæði
Samvinna með umboðsaðilum farþegaskipa og Hafnarfjarðarhöfn
Miðlun upplýsinga um ferðatengda þjónustu innan Hafnarfjarðar
Markaðsrannsókn í samvinnu við Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Aðstoð við svörun fyrirspurna um áfangastaðinn Hafnarfjörð
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur
Stúdentspróf
Æskilegt að hafa reynslu af ferðaþjónustu eða hliðstæðum störfum
Áhugi á ferðaþjónustu
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð samskiptahæfni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
Góð íslensku og ensku kunnátta í töluðu og rituðu máli
Góða þekkingu á hafnfirsku samfélagi til að miðla til farþega
Nánari upplýsingar veitir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar, ludvik@hafnarfjordur.is og Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri menningar- og ferðamála á Þjónustu- og þróunarsviði, sunnam@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur til og með 6. apríl 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og STH.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Höfuðborgarsvæðið | Hafnarfjörður