Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í geðlækningum. Um er að ræða 25% - 50% starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi. Unnið er í nánu samstarfi við þverfaglegt geðheilsuteymi. Jafnframt felst í starfinu þátttaka í kennslu annarra heilbrigðisstétta og handleiðslu sérnámslækna, með sveigjanlegu starfshlutfalli (25-50%) með möguleika á staðvinnu og fjarvinnu. Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (). Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis auk flutningsstyrks. Mat og greining á vanda skjólstæðinga Þjónusta við skjólstæðinga á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu með sálfræðingum, félagsráðgjöfum og læknum í geðheilsuteymi HVest Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, handleiðsla sérnámslækna í heimilislækningum. Vinnuhlutfall 25-50%. Bæði vinnulotur á staðnum og fjarvinna. Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðiréttindi í geðlækningum Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi og sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar Fagleg þekking, reynsla og hæfni á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragð. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Stöðunefnd lækna metur umsækjendur skv. 36. gr. laga 40/2007 , sjá einnig umfjöllun á vef Embættis landlæknis , starfsreglur nefndarinnar og verklagsreglur stöðunefndarinnar . Mikilvægt er því að umsókninni fylgi sérprent eða ljósrit af greinum sem umsækjandi hefur skrifað og birt. Þá er umsækjanda heimilt að senda inn meðmæli eða önnur gögn sem votta hvernig hann hefur staðið sig í starfi. Umsögn stöðunefndar byggist á innsendum gögnum. Stöðunefnd getur tekið sér sex vikur til að yfirfara innsendar umsóknir. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum, mati stöðunefndar lækna og umsögnum meðmælenda. Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla. Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar . Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Starfshlutfall er 25-50% Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2026 Kristrún Guðmundsdóttir Tölvupóstur: kristrun.gudmundsdottir@hvest.is Thelma Björk Guðmundsdóttir Tölvupóstur: thelma.gudmundsdottir@hvest.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Sérfræðingur í geðlækningum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Staðsetning Vestfirðir Starfshlutfall 25-50% Starf skráð 20.10.2026 Umsóknarfrestur 13.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar