Verkmenntaskóli Austurlands leitar að kennara í rafiðngreinum. Um er að ræða 100% stöðugildi. Starfið felst í undirbúningi, framkvæmd og úrvinnslu kennslu og námsmats í þeim áföngum sem viðkomandi er falið að kenna, þannig að markmiðum skólans sé fylgt. Einnig að fylgjast með að kennsla og námsefni uppfylli kröfur íslenskra laga og reglugerða sem gilda um rekstur framhaldsskóla sem og alþjóðlegar kröfur ef faggreinin veitir slík réttindi. Verkmenntaskóli Austurlands er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt bók- og verknám auk starfsbrautar. Heimavist og mötuneyti er starfrækt í skólanum. Í skólanum kennt í stað-, fjar-, helgar- og dreifnámi. Um 35 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru um 500. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat m.a. með áherslu á leiðsagnarnám. Kennsla, undirbúningur kennslu, framkvæmd námsmats og faglegt samstarf í kennslugreinum, skv. gæðakerfi og öðrum markmiðum skóla sem og markmiðum aðalnámskrár Viðhalda faglegri hæfni sinni og huga að tengslum við aðrar námsgreinar Þátttaka í þróunar- og umbótastarfi er lýtur að almennu skólastarfi og innan sinna greina Meistararéttindi í rafiðngrein eða iðn-, tækni-, eða verkfræði á rafmagnssviði Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari sbr. lög nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum Frumkvæði og góð skipulagshæfni Áhugi á skólastarfi og vinnu með ungu fólki Góð tölvukunnátta Kennslureynsla og góð þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum æskileg Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn: Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur Ferilskrá Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við Í ljósi jafnréttisáætlunar skólans eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin. Á heimasíðu skólans, www.va.is eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans. Skólinn starfar innan vottaðs gæðakerfis samkvæmt ISO-9001 staðli og vottaðs jafnlaunakerfis samkvæmt ÍST 85:2012 staðlinum. Ath. starfið er með staðsetningu í Verkmenntaskóla Austurlands, Fjarðabyggð. Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2027. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 03.11.2026 Birgir Jónsson Tölvupóstur: birgir@va.is Sími: 4771620 og 8687556 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Kennari í rafiðngreinum Staðsetning Austurland Starfshlutfall 100% Starf skráð 19.10.2026 Umsóknarfrestur 03.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar