Tímabundin staða ljósmóður við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi er laus til umsóknar. Ljósmæðravakt HSU er D1 fæðingarstaður með um það bil 80 fæðingar á ári. Unnið er á dagvöktum alla daga vikunnar, ein ljósmóðir á kvöldvakt á mánudögum til fimmtudags en bakvaktir eru á öðrum tímum sólarhringsins. Alltaf er ljósmóðir á bakvakt fyrir bráðaútköll og önnur á fæðingarvakt. Á Ljósmæðravaktinni er öll mæðravernd kvenna búsettra á Selfossi og nágrenni. Einnig er mæðravernd á vegum deildarinnar í Uppsveitum, Hveragerði, Þorlákshöfn, Rangárþingi og Vík. Ljósmæður deildarinnar sjá einnig um göngudeildarþjónustu fyrir þungaðar konur og áfram fyrstu tvær vikur eftir fæðingu. Samvinna er við áhættumæðravernd LSH. Símaþjónusta er á deildinni á daginn og bráðasímtölum er svarað allan sólarhringinn af ljósmóður á bakvakt. Umsækjendur skulu hafa lokið ljósmæðramenntun. Starfsleyfi Landlæknis. Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð og fumkvæði í starfi. Framúrskarandi samskiptahæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf. Góð íslenskukunnátta. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert. Um tímabundna stöðu er að ræða, með möguleika á framlengingu. Starfið er laust frá 1. nóv, upphafsdagur ráðningar og starfshlutfall er eftir samkomulagi. Vinnufyrirkomulag er einnig eftir samkomulagi. HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós. Starfshlutfall er 10-100% Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026 Rakel Ásgeirsdóttir Tölvupóstur: rakel.asgeirsdottir@hsu.is Sími: 866 9903 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Ljósmóðir - tímabundin staða Staðsetning Suðurland Starfshlutfall 10-100% Starf skráð 28.10.2026 Umsóknarfrestur 09.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar