Fosshótel Reykjavík óskar eftir að ráða yfirbarþjón til starfa með umsjón yfir Lobbý bar og Bjórgarði.
Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutíminn er frá 12-22 þriðjudaga til laugardaga.Við leitum að öflugum og drífandi stjórnanda til starfa í lifandi og alþjóðlegu umhverfi.
Helstu verkefni:
· Fagleg móttaka gesta.
· Þjálfun starfsfólks.
· Mönnun vakta.
· Talning og pöntun á lager.
· Svörun tölvupósta.
· Þjónusta við gesti og sala.
· Fagleg úrlausn mála sem upp kunna að koma.
· Vinna stöðugt að markmiðum í sölu og nýtingu.
· Önnur tilfallandi verkefni.
Menntun og hæfniskröfur:
· Rík þjónustulund.
· Reynsla af barstörfum er skilyrði.
· Fagmannleg framkoma, snyrtimennska.
· Reynsla af stjórnunarstörfum er skilyrði.
· Góð samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi.
· Lágmarksaldur 25 ára.
· Góð íslensku- og ensku kunnátta.
· Þriðja tungumál er kostur.
· Góð almenn tölvukunnátta.
Umsóknarfrestur er til 9.desember 2018.