× Þessi auglýsing er útrunnin

Persónulegur aðstoðarmaður óskast

Ég er 38 ára gömul kona sem er bundin við hjólastól eftir hjartastopp. 

Óska eftir aðstoðarfólki af sama kyni 35 ára eða eldri. Hreint sakavottorð og bílpróf eru skilyrði. 

Ég þarfnast aðstoðar við öll dagleg störf og er því mikilvægt að viðkomandi sé líkamlega hraustur.

Mismunandi starfshlutföll geta komið til greina en um er að ræða starf á venjulegum vinnutíma að öllu jöfnu.

Ekki er gerð krafa um reynslu af störfum með fötluðu fólki.

Áhugasamir endilega sendið mér ferilskrá ásamt helstu upplýsingum. 

Aðrar upplýsingar

Ég er 38 ára gömul brosmild og jákvæð kona sem er bundin í hjólastól eftir hjartastopp og þarf því á persónulegum aðstoðarmönnum að halda við daglegt líf.

Ég bý í Hafnarfirði ástamt manninum mínum og tveimur börnum.

Ég legg mikið uppúr því að dagarnir séu skemmtilegir og fjölbreyttir.

Auglýsandi

Heiða slf

Umsóknarfrestur til

2. janúar

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar