Viltu nýta gögn til að skapa skýrari yfirsýn og styðja við betri ákvarðanir? Við viljum ráða sérfræðing sem hefur áhuga á að þróa gagnalíkön, greina gögn og miðla niðurstöðum á skýran og aðgengilegan hátt. Í starfinu felst að móta og þróa gagnalíkön sem nýtast til greiningar og upplýsingamiðlunar. Unnið er í samstarfi við sérfræðinga og notendur að því að skilja upplýsingaþarfir, tryggja gæði gagna og gera flóknar upplýsingar aðgengilegar. Hönnun, þróun og viðhald gagnalíkana fyrir greiningar og skýrslugerð. Úrvinnsla og greining gagna úr ólíkum kerfum og gagnasöfnum. Þróun skýrslna og mælaborða sem veita skýra yfirsýn og styðja við ákvarðanatöku. Þróun gervigreindarfulltrúa (AI-agenta) og vinna með MCP við tengingu þeirra við gögn og þjónustur. Greining á gæðum gagna og þátttaka í umbótum á skráningu, samræmingu og nýtingu þeirra. Skilgreining og skjölun mælikvarða, hugtaka og tengsla í gögnum. Samstarf við notendur og sérfræðinga um þarfagreiningu og framsetningu niðurstaðna. Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði, hagfræði eða viðskiptafræði, eða sambærileg þekking og reynsla. Reynsla af þróun gagnalíkana og greiningu gagna. Góð þekking á SQL og vinnslu gagna úr gagnagrunnum. Mjög góð þekking á Power BI, DAX og merkingarlíkönum (semantic models). Þekking á MCP og þróun gervigreindarfulltrúa (AI-agenta). Hæfni til að greina þarfir og miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, nákvæmni og góð samstarfs- og samskiptahæfni. Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti. Það er kostur að hafa: Þekkingu á bókhaldi, launum og opinberum innkaupum. Reynslu af vinnslu fjárhags-, launa- eða innkaupagagna. Þekkingu á gagnavinnslu í Azure. Þekkingu á PL/SQL. Þekkingu á VS Code, Codex og Claude Code. Þekkingu á gagnavöruhúsum, gagnasamþættingu og sjálfvirkni í gagnavinnslu. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Segðu okkur af hverju þetta verkefni höfðar til þín og hvað þú myndir vilja byggja með okkur. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni og við ráðningu í starfið er farið eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2026 Sigurjón Einar Þráinsson Sviðsstjóri umbóta- og þróunarsviðs Tölvupóstur: sigurjon.thrainsson@fjs.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Sérfræðingur í þróun gagnalíkana og greiningu gagna Staðsetning Óstaðbundið Starfshlutfall 100% Starf skráð 26.10.2026 Umsóknarfrestur 05.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar