Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir jákvæðum og þjónustulunduðum sjúkraliða/ sjúkraliðanema á hjúkrunardeild. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, öryggi, virðingu og góða þjónustu. Ráðningartími og starfshlutfall er skv. samkomulagi. Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt. Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira. Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila Eftirlit með líðan íbúa og miðlun mikilvægra upplýsinga til hjúkrunarteymis Skráning og meðferð upplýsinga samkvæmt verklagsreglum og gæðaviðmiðum Þátttaka í teymisvinnu Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og umbótaverkefnum eftir því sem við á Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar Önnur tilfallandi verkefni Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ staðfesting á námi fyrir nema Reynsla af umönnunar er kostur Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni Áhugi á að starfa með fólki Áreiðanleiki og sveigjanleiki Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi Góð íslenskukunnátta skilyrði Hreint sakavottorð og gott orðspor Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf á íslensku ásamt afriti af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing. HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu. Starfshlutfall er 50-100% Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026 Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur svæðis Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is Sími: 432 4200 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Sjúkraliði/ sjúkraliðanemi - HSN Sauðárkrókur Staðsetning Norðurland vestra Starfshlutfall 50-100% Starf skráð 02.11.2026 Umsóknarfrestur 12.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar
Norðurland | Sauðárkrókur