Rekstrarvörur leitar eftir að ráða sölumann í verslun sína að Réttarhálsi 2.
Rekstrarvörur sérhæfa sig í sölu-og dreifingu á hreinlætivörum, hjúkrunar- og rekstrarvörum.
Í starfinu felst sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini, áfyllingar á hillur og annað sem tilheyrir starfinu.
Verslunin er opin alla virka daga frá klukkan 8:00-18:00, unnið er á 9klst vöktum mánudaga-fimmtudaga og 8klst á föstudögum.
Auk þess er verslunin opin á laugardögum kl 11:00-15:00, æskilegt er að starfsmaður að geti unnið annan hvern laugardag.
Hæfniskröfur:
- Áhugi
- Stundvísi
- Góð þjónustulund
- Íslenskukunnátta
- Reynsla af sölustörfum æskileg
- Þarf að geta hafið störf fljótlega
Rekstrarvörur er reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist á sigurlaug@rv.is Umsjón með ráðningu hefur Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir, Fræðslu-og starfsmannastjóra RV, farið er fram á kynningarbréf ásamt ferilskrá með mynd.