Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun ? Heilsugæslan Árbæ leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf. Um er að ræða 50 - 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi. Á heilsugæslustöðinni starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Heilsugæslan Árbæ býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi. Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl. Leyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi, skilyrði Víðtæk starfsreynsla og/eða reynsla af sambærilegu starfi, skilyrði Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum Góð íslenskukunnátta skilyrði Góð almenn tölvukunnátta Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Starfshlutfall er 50-100% Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2026 Helga Sævarsdóttir Forstöðumaður Tölvupóstur: helga.saevarsdottir@heilsugaeslan.is Sími: 513-5200 Tinna Karen Árnadóttir Fagstjóri lækninga Tölvupóstur: tinna.karen.arnadottir@heilsugaeslan.is Sími: 513-5200 Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Árbæ Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 50-100% Starf skráð 28.04.2026 Umsóknarfrestur 13.05.2026 Stafrænt Ísland Opinberir aðilar Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar English Facebook Akstur og bifreiðar Atvinnurekstur og sjálfstætt starfandi Dómstólar og réttarfar Fjármál og skattar Fjölskylda og velferð Heilbrigðismál Húsnæðismál Iðnaður Innflytjendamál Launþegi, réttindi og lífeyrir Málefni fatlaðs fólks Menntun Neytendamál Samfélag og réttindi Samgöngur Umhverfismál Vegabréf, ferðalög og búseta erlendis Samráðsgátt Undirskriftalistar Opnir reikningar ríkisins Tekjusagan Ríkisreikningur
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík