Málastjóri óskast til starfa í Laufeyjarteymi Landspítala. Starfið býður upp á mörg spennandi tækifæri til starfsþróunar. Staðan er laus frá 1. júlí 2026 og er starfshlutfall 80-100%. Eingöngu er um dagvinnu að ræða. Laufeyjarteymi þjónustar einstaklinga sem lifa með langvarandi samslætti geðsjúkdóma og fíknar, á því stigi að hvort um sig er alvarlegt og óstöðugt í eðli sínu og fyrri og vægari meðferðarnálganir hafa ekki skilað árangri eða bættum lífsgæðum. Teymið þjónustar einstaklinga í þeirra nærumhverfi, á vettvangi. Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á geðrænum einkennum og á einstaklingsbundnum þörfum, sinna meðferð og eftirfylgd, þróa meðferðaráætlanir og vöktun á árangri þjónustunnar. Málastjóri er talsmaður skjólstæðinga gagnvart kerfum og þjónustu í nánu notendasamráði sem byggir á góðu meðferðarsambandi. Málastjóri er einnig í samskiptum við aðstandendur og heldur utan um þá meðferð og endurhæfingu sem einstaklingurinn þarf á að halda. Laufeyjarteymi er hluti af ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu og mun frá hausti vera staðsett á Kleppi. Málastjórn, þ.m.t. greining á þjónustuþörf, færni og gerð meðferðaráætlana, tryggja eftirfylgni, yfirsýn yfir samskipti, fræðsla, leiðbeiningar og heildrænn stuðningur Málsvarastarf fyrir skjólstæðinga Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi Stuðningur við aðstandendur Notendasamráð og þróun þjónustu Virk þátttaka í framþróun, uppbyggingu þjónustunnar og umbótastarfi deildar Önnur fjölbreytt verkefni Háskólapróf sem nýtist í starfi Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi sem og einlægur áhugi á að þjónusta og sinna einstaklingum með geðsjúkdóma og vímuefnavanda Góð þekking á geðsjúkdómum, HAM, viðtalstækni og áhugahvetjandi samtölum Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar Reynsla af sambærilegum störfum er kostur Reynsla af starfi innan geðþjónustu er kostur Mjög góð samskiptahæfni Jákvætt hugarfar, metnaður og færni til að starfa í þverfaglegu teymi Stundvísi og áreiðanleiki Hæfni til að vinna sjálfstætt, skipuleggja og forgangsraða verkefnum Góð almenn tölvukunnátta Góð færni í íslensku og ensku, bæði í mæltu og rituðu máli Gilt ökuskírteini Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi eins og við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað. Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sálfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, þroskaþjálfi, málastjóri Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5 Staðsetning: Kleppur, 104 Reykjavík Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 29.05.2026 Ína Rós Jóhannesdóttir Tölvupóstur: inaros@landspitali.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Málastjóri í Laufeyjarteymi Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 100% Starf skráð 18.05.2026 Umsóknarfrestur 29.05.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík