Við óskum eftir að ráða til starfa öfluga liðsmanneskju í okkar góða hóp á legudeild geðrofssjúkdóma. Starfið felst í umsjón með umhverfi deildar s.s. undirbúningi og frágangi matmálstíma, línherbergi, þvottahúsi, geymslurýmum, starfsmannaaðstöðu og almennum rýmum og skipulagi á nauðsynlegu viðhaldi, ásamt virkum samskiptum við sjúklinga og samstarfsfólk. Leitað er eftir þjónustulundaðri, lausnamiðaðri og jákvæðri manneskju sem er sjálfstæð og skipulögð í starfi. Viðkomandi er virkur þátttakandi í starfsemi deildarinnar og þarf að geta sýnt sveigjanleika í því síbreytilega umhverfi sem deildin er. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sæki námskeið í grunnendurlífgun og sé vel að sér varðandi sóttvarnir og smitgát. Á deildinni eru rými fyrir 16 skjólstæðinga, þar sem einstaklingar með geðrofssjúkdóma fá sérhæfða meðferð, allt frá bráðum veikindum og endurhæfingu. Deildarstarfið byggir á samvinnu þar sem mikilvægt er að sérhver starfsmaður fær að nýta styrkleika sína. Starfið er dagvinna, fyrri hluta dags alla virka daga og er starfshlutfall eftir samkomulagi 60-80%. Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna afleysingar frá 1. júní 2026 til 1. september 2027. Undirbúningur matmálstíma með því að sækja matarvagn og bera mat á borð Frágangur í matsal og eldhúsi eftir matmálstíma Ber ábyrgð á að almennt rými deildar sé snyrtilegt Ber ábyrgð á að þvottahús, skol og lín sé snyrtilegt Yfirumsjón með pöntun og frágangi matvæla og nauðsynjavara Er hluti af teymi deildar og tekur þátt í að meta geðhag sjúklinga eins og við á Stuðlar að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi Menntun sem nýtist í starfi Reynsla af starfi á Landspítala er kostur Reynsla af starfi í matarþjónustu er kostur Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum Frumkvæði, drifkraftur og sveigjanleiki Hæfni og geta til að starfa sjálfstætt sem og í teymi Stundvísi, áreiðanleiki, hreinlæti og snyrtimennska Áhugi á að starfa með einstaklingum með geðrænar áskoranir íslensku- og enskukunnátta Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum og hvetjum við fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað. Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, býtibúr, kaffistofa, þjónustustörf, teymisvinna, umbætur, Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5 Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík Starfshlutfall er 60-80% Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026 Guðfinna Betty Hilmarsdóttir Tölvupóstur: gudfinna@landspitali.is Una Lind Hauksdóttir Tölvupóstur: unalh@landspitali.is Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Tímabundið starf í býtibúr og þjónustustuðning á legudeild geðrofssjúkdóma Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 60-80% Starf skráð 01.04.2026 Umsóknarfrestur 13.04.2026 Stafrænt Ísland Opinberir aðilar Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar English Facebook Akstur og bifreiðar Atvinnurekstur og sjálfstætt starfandi Dómstólar og réttarfar Fjármál og skattar Fjölskylda og velferð Heilbrigðismál Húsnæðismál Iðnaður Innflytjendamál Launþegi, réttindi og lífeyrir Málefni fatlaðs fólks Menntun Neytendamál Samfélag og réttindi Samgöngur Umhverfismál Vegabréf, ferðalög og búseta erlendis Samráðsgátt Undirskriftalistar Opnir reikningar ríkisins Tekjusagan Ríkisreikningur
Höfuðborgarsvæðið | Reykjavík